STJÓRNUNARKERFI-RÁÐGJÖF bíður uppá greiningu, innleiðingu og rekstur stjórnunarkerfa, með heildstæða nálgun að leiðarljósi, þar sem markmiðið er að ná fram stefnu og gildum skipulagsheildarinnar með einu samhæfðu, miðlægu og skilvirku stjórnunarkerfi með hjálp viðurkenndra ISO staðla og ITIL (bestu aðferðum við rekstur upplýsingatækni).
Veist þú um fyrirtæki eða stofnun sem:
- vill bæta gæðin sín (Quality management), auka ánægju viðskiptavina sinna, veita faglegri og skilvirkari þjónustu, framleiða betri vörur, lækka kostnað sinn og minnka rekstraráhættu?
- hefur áhyggjur af upplýsingaörygginu sínu (Information- and cyber security management), gögnum sem skipulagsheildin á allt sitt undir, afritatökunni, trúnaðarupplýsingum, aðgangstjórnuninni, mikilvægum upplýsingaeignum,
- setur umhverfismálin í forgang (Environment management) og vill lækka kolefnisfótsporið, ná ákveðnum settum umhverfismarkmiðum eða innleiða nýju sjálfbærniskýrsluna (CSRD) frá Evrópusambandinu,
- leggur áherslu á heilbrigði, öryggi og vinnuvernd (Occupational health and safety management) – og vill auka öryggið og minnka líkurnar á að það verði slys á vinnustaðnum,
- vill auka fagmennsku í breytinga- og verkefnastjórnuninni (Change- and project management) um leið og það tekst á við innleiðingu á nýjustu skipulagbreytingunni eða nýja upplýsingakerfið?
Ef svörið er “Já” þá getur undirritaður komið til aðstoðar – sjá nánar í “ÞJÓNUSTA”. Ég bíð fram sjálfstæða ráðgjafaþjónustu þar sem ég nýti yfir 20 ára reynslu mína við uppbyggingu og rekstur stjórnunarkerfa byggða á m.a. á ISO stjórnunarkerfisstöðlum og ITIL (Information Technology Infrastructure Library) ferlakerfinu. Alls 10 ára reynsla sem gæðastjóri og 8 ára reynsla sem þjónustustjóri í fyrirtækjum bæði á Íslandi og í Noregi getur vonandi nýst þinni skipulagsheild. Undirritaður hefur m.a. starfað sem þjónustustjóri fyrir stórt fyrirtæki í olíuiðnaði sem gerði miklar kröfur til gæða- og upplýsingaöryggisstjórnunar- og reksturs upplýsingakerfa. Hef einnig reynslu af innleiðingu ISO 27001 og ISO 9001 staðlana frá grunni í 350 manna upplýsingatæknifyrirtæki (Cegal AS) og hef jafnframt rekið gæðastjórnunarkerfi hjá einu af stærstu sveitarfélögum landsins.
Sigurður Arnar Ólafsson (Addi Ólafs)
Netfang: sigarnar(hjá)stjorunarkerfi.is

Bogabrúin við
Fnjóská
(1908)
Það skal vanda sem lengi á að standa.
Bogabrúin yfir Fnjóská, byggð 1908, er gott dæmi um fallega hönnun og gæði. Hún var fyrsta bogabrúin sem byggð var hér á landi, og talin á þeim tíma lengsta steinbogabrú á Norðurlöndum. Brúin var hönnuð og reist af danska fyrirtækinu Christiani & Nielsen í Kaupmannahöfn, verkfræðingur að nafni Knud Reffstrup stjórnaði brúarsmíðinni.
