Bókaðu ókeypis ráðgjöf!
Hvort sem þú ert að sækjast eftir ISO-vottun, viðhalda reglufylgni eða bæta afköst kerfisins, þá býður STJÓRNUNARKERFI-RÁÐGJÖF upp á skipulagðan og hagnýtan stuðning sem er sniðinn að þörfum skipulagsheildarinnar. Ráðgjöf okkar er hönnuð til að hjálpa þér að skýra markmið, meta núverandi gloppur í stjórnunarkerfinu og kanna hvernig við getum stutt við innleiðingu, vottunarúttekt eða umbætur sem eru fyrirhugaðar. Ókeypis ráðgjöf er skilyrt m.v. skipulagsheildir með íslenkst heimilisfesti og kennitölu.
Hverju má búast við í ráðgjöfinni og í ókeypis heimsókn (m.v. höfðuborgarsvæðið og nágrenni, Akureyri og nágrenni) eða símtali.
Bókaðu símtal hér: “HAFA SAMBAND”.
Boðið uppá að ræða:
- Ræða um tiltekið stjórnunarkerfi að þínu vali (Til dæmis: ISO 9001, ISO 27001, ISO 14001, ISO 45001, ITIL).
- Fara yfir núverandi stöðu ykkar og greina hvar þið eruð stödd í innleiðingar-, vottunar- eða reglufylgniferlinu.
- Kanna hvernig STJÓRNUNARKERFI-RÁÐGJÖF getur stutt við innleiðingu, rekstur eða innri endurskoðun kerfisins.
- Svara spurningum þínum um tímalínur, úrræði, umbætur og næstu skref.
- Við sníðum hvert verkefni að þinni skipulagsheild – hvort heldur þú rekur sprotafyrirtæki, sem þarfnast fyrsta stjórnunarkerfisins, eða ert í rótgrónu teymi sem er að undirbúa endurvottun eða ert að undirbúa þig fyrir úttekt viðskiptavina þinna.
Með hverjum vinnum við?
- Framleiðendum, þjónustuaðilum, sveitarfélögum, ríkisstofnunum og eftirlitsskyldum stofnunum – svo að segja öllum tegundum skipulagsheilda.
- Teymum sem sækjast eftir að vinna með: ISO 9001, 14001, 27001, 45001, ITIL bestu aðferðir og fleira.
- Skipulagsheildum sem undirbúa vottunarúttektir, viðskiptavinaúttektir, úttektir reglufylgnistofnana, innri úttektir, áhættumöt eða rýni stjórnenda.
Hvers vegna að vinna með STJÓRNUNARKERFI-RÁÐGJÖF:
- Reynsla við innleiðingu og rekstur stjórnunarkerfa – 20 ár
- Rekstur vottaðrar ISO stjórnunarkerfa – 15 ár
- Þjónustustjórnun og rekstur þjónustuvera – 8 ár.
- Rekstur gæðstjórnunarkerfis ISO 9001 fyrir stórt sveitarfélag – 5 ár.
- Þjónustustjórnun fyrir stórfyrirtæki í olíugeiranum í Noregi – 3 ár.
- Innleiðing stjórnunarkerfis: gæða (ISO 9001) og upplýsingaöryggis (ISO 27001) í 350 manna hýsingar- og skýjaþjónustufyrirtæki.
- Fjölbreytt áralöng reynsla í ýmsum geirum samfélagsins.
- Árangursmiðuð nálgun sniðin að markmiðum þínum.
- Vingjarnleg, skýr og bein leiðsögn – einfaldar nálganir.
Bókaðu símtal hér: “HAFA SAMBAND”. Þar kemur upp eyðublaðið þar sem þú getur komið með tillögu að fundartíma. Við munum fylgja fyrirspurnum eftir með staðfestingu og stuttum spurningalista fyrir símtalið svo við getum nýtt tímann þinn sem best.
Við skulum taka næsta skref í átt að bættum: gæðum, upplýsingaöryggi, umhverfimarkmiðum, fækkun slysa eða reglufylgni af öryggi.
