ÞJÓNUSTA

Greining, innleiðing og rekstur stjórnunarkerfa,

með heildstæða nálgun að leiðarljósi, þar sem markmiðið er að ná fram stefnu og gildum skipulagsheildarinnar með einu samhæfðu, miðlægu og skilvirku stjórnunarkerfi með hjálp viðurkenndra staðla:

  • Gæðastjórnun (ISO 9001).
  • Upplýsingaöryggisstjórnun (ISO 27001, NIS2, DORA, ITIL).
  • Umhverfisstjórnun (ISO 14001, sjálfbærniupplýsingagjöf, CSRD, ESRS).
  • Heilbrigði, öryggis og vinnuverndarstjórnun (ISO 45001).
  • Ýmis önnur ISO stjórnunarkerfi sem byggja á hinu sameiginlega grunnkerfi ISO staðlanna.
  • ITIL (Information Technology Infrastructure Library) – Bestu aðferðir við skilgreiningu, hönnun, innleiðingu, rekstur og umbætur upplýsingakerfa yfir allan líftíma þeirra.

Gæða- upplýsingaöryggis- umhverfis- öryggisstjóri til leigu

Í meðalstórum og minni fyrirtækjum getur verið hagkvæm lausn að leigja sér reyndan aðila sem sér um innleiðingu og rekstur stjórnunakerfis skipulagheildarinnar. 

Innri úttektir

eru frábært verkfæri fyrir stjórnendur til þess að kanna gæði þjónustu eða vöru, hvort hún stenst skilgreindar kröfur. Fáðu óháðan aðila til að gera innri úttekt og skila skriflegu stöðumati á gæðum ákveðinnar þjónustu eða vöru og verkferlum þeim tengdum. 

Áhættustjórnun og gerð áhættumats

þar sem m.a. stuðst er við aðferðafræði ISO 31000 og ISO 27005. Áhættumat er lykilverkfæri við forgangsröðun umbóta í öllum stjórnunarkerfum.

Birgjamat

Birgjamat er mikilvægt fyrir þær skipulagsheildir sem eru á einhvern hátt háðar birgjunum sínum t.d. um afhendingu vöru og/eða þjónustu, tímanlega og í samræmi við kröfur. Boðið er uppá aðstoð við skilgreiningu krafna til ytri aðila og framkvæmd reglulegs frammistöðumats birgja til að tryggja hagsmuni viðkomandi skipulagsheildar og stuðla um leið að lækkun áhættu.

    Gerð skýrra og skilvirka verkferla

    Sérsniðin ráðgjöf um gerð verkferla með markmið um að skapa skýrleika og auka skilvirkni samhliða því að útrýma sundurlausum ferlum, óljósri ábyrgð eða ósamræmi í framkvæmd. Árangursrík ráðgjöf um verkferla sem leggur áherslu á að laga kerfið frekar en að leita að blóraböglum. Hjálpum skipulagsheildum að hanna skipulagða, skalanlega rekstrarferla sem styðja skilvirkni, reglufylgni og langtímaárangur skipulagsheildarinnar.

    Útvistun upplýsingakerfa og gerð þjónustusamninga

    við hýsingar- og skýjaþjónustufyrirtæki. Innleiðing og útfösun upplýsingakerfa, t.d. verkbeiðnakerfa eins og ServicNow, BMC Helix og Jira eða skjalastjórnunarkerfa: MS SharePoint, GoPro og OneSystems.

    Breytinga og verkefnastjórnun

    Aðstoð við innleiðingu og/eða aðlögun: stjórnunarkerfa, upplýsingakerfa og hverskonar skiplagsbreytinga.


      Ef þú vilt vita meira um þær þjónustur sem eru í boði er bara að velja “HAFA SAMBAND” og við höfum samband um hæl.


      Stjórnunarkerfi eru frábært og þaulreynt verkfæri – til að ná fram stefnu skipulagsheildarinnar, auka gæði og minnka áhættu.
      Meira um stjórnunarkerfi í “FRÆÐSLA”

      Leiðin við skipulagsbreytingar og breytingarstjórnun getur verið brött og grýtt en með góðum stuðningi og forsjálni komumst við alla leið 🙂