Sigurður Arnar Ólafsson
Sigurður Arnar Ólafsson (Addi Ólafs.) eigandi og ráðgjafi Stjórnunarkerfa hefur víðtæka reynslu af innleiðingu og rekstri stjórnunarkerfa ISO og ITIL. Sigurður hefur einnig áralanga reynslu bæði úr einka- og opinbera geiranum þar sem hann starfaði sem ýmist sem gæða- eða þjónustustjóri í 18 ár. Sigurður hefur áratuga reynslu sem bæði stjórnandi og verkefnisstjóri í stærri og minni fyrirtækjum en þó lengst af í upplýsingatæknigeiranum þar sem hann hefur starfað í 20 ár, þar af 8 ár í Stavanger í Noregi.
Loks má nefna að Sigurður er núverandi formaður faghóps Stjórnvísi – Gæðastjórnun og ISO staðlar og starfaði einnig áður í faghópnum Breytingastjórnun í 2 ár.
- Ýmis stjórnunar og tæknistörf í upplýsingatæknigeiranum – 20 ár
- Gæðastjóri bæði á Íslandi og í Noregi -10 ár.
- Rekstur þjónustuvers bæði á Íslandi og í Noregi – 8 ár.
- Gæðastjórastörf fyrir sveitarfélag – 5 ár.
- Þjónustustjóri fyrir stórfyrirtæki í olíugeiranum í Noregi – 3 ár.
- Innleiðing stjórnunarkerfis: gæða (ISO 9001) og upplýsingaöryggis (ISO 27001) í 350 manna hýsingar- og skýjaþjónustufyrirtæki.
- Fjölbreytt áralöng reynsla í ýmsum geirum samfélagsins.

